Hagsmunasamtök heimilanna og Húseigendafélag hafa skorað á verkalýðshreyfinguna í landinu að taka afgerandi stöðu með heimilunum í landinu vegna gríðarlegs og hratt vaxandi fjárhagsvanda þeirra, sem sé meðal annars afleiðing ófyrirsjáanlegra, óeðlilegra og jafnvel ólöglegra hækkana á gengis- og verðtryggðum veðlánum heimilanna í kjölfar efnahagshrunsins.
„Um 42% heimila eru með bága eða neikvæða eiginfjárstöðu skv. gögnum Seðlabanka Íslands frá síðustu áramótum. Allt bendir til að efnahagur þeirra hafi versnað enn frekar frá áramótum og muni halda áfram á þeirri voðabraut, nema gripið verði inn í með almennri leiðréttingu lánanna. Um 25% heimila landsins eru með gengistryggð veðlán og um 90% þeirra eru í tímabundinni frystingu. Umsóknum Íbúðarlánasjóðs vegna greiðsluerfiðleika hefur fjölgað um 900% á milli ára.
Forsendur verð- og gengistryggðra lána eru brostnar og þeim heimilum fjölgar ískyggilega hratt sem geta ekki staðið í skilum eða sjá hvorki tilgang né skynsemi í að greiða af lánum sem hækka stjórnlaust úr öllu valdi . Kaupmáttur rýrnar óðum og atvinnuleysi er í sögulegum hæðum, sem leiðir til samdráttar í einkaneyslu, sem eykur svo atvinnuleysið enn frekar,“ segir í fréttatilkynningu frá samtökunum.
Samtökin skora því á launþegahreyfingar landsins að knýja á stjórnvöld og kalla eftir tafarlausum almennum leiðréttingum á gengis-og verðtryggðum lánum heimilanna. Undir áskorunina skrifa Þórður B. Sigurðsson, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna og Sigurður Helgi Guðjónsson, formaður Húseigenda félagsins.
Skráðir félagar í ofangreindum samtökum eru samtals um 11.000.