Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn þriggja manna sem reynt hafa að brjótast inn í hraðbanka og verslanir undanfarna daga. Þeir eru taldir vera um þrítugt og eru „útlendingslegir“ á að líta, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.
Þeir sem telja sig þekkja mennina eða búa yfir upplýsingum um málið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444 1100.