Manninum sem féll ofan af húsþaki við Skólavörðustíg í morgun er nú haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans. Að sögn svæfingarlæknis þar er hann höfuðkúpubrotinn og einnig með innvortis meiðsli. Líðan hans er eftir atvikum.
Fram hefur komið að lögregla telur ekkert benda til þess að saknæmt athæfi hafi átt sér stað þegar slysið varð.