Vegna mannlegra mistaka í umbrotsvinnslu Vinnunnar, tímarits ASÍ sem kom út þann 1. maí, birtist ávarp forseta Alþýðusambandsins, Grétars Þorsteinssonar, frá því í fyrra í stað ávarps sem núverandi forseti, Gylfi Arnbjörnsson, hafði ritað fyrir blaðið.
Ritstjórn Vinnunnar biðst velvirðingar á mistökunum á vef ASÍ en rétt ávarp má lesa hér.