Tveir karlmenn fengu að sofa úr sér í fangaklefum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt vegna ölvunar. Að öðru leyti var nóttin „afspyrnu róleg“ líkt og varðstjóri lögreglunnar komst að orði. Hann sagði það helgast af árstímanum, skólafólk væri í próflestri.
Afar fá verkefni komu upp og t.a.m. var enginn tekinn fyrir ölvunarakstur. Skemmtanahald í miðborginni fór jafnframt vel fram.