Íslensk vara sækir á

mbl.is

Innflutningur mat- og drykkjarvöru hefur dregist saman um tæp 30% það sem af er þessu ári miðað við sama tíma árið 2008, samkvæmt tölum Hagstofunnar.

Greinilegt er því að innkaupakörfur landans eru öðruvísi samansettar nú en í fyrra þótt ekki hafi verið formlega kannað hvernig neyslumynstrið hefur breyst. Þórólfur Þórlindsson, forstjóri Lýðheilsustofu, vill ekki meina að Íslendingar hafi ástundað slíka ofneyslu á matvörum að við megum við 30% samdrætti án þess að finna fyrir því.

„Á þessum tíma í fyrra var til dæmis verið að flytja inn mikið af nautakjöti og kjúklingum en þar hafa orðið algjör umskipti og mjög lítið verið flutt inn á þessu ári,“ segir Guðmundur og nefnir einnig að kaupmynstur hafi breyst þegar kemur að kaffi. Mun meira sé nú keypt af kaffi sem er brennt og malað á Íslandi. Annað dæmi sé frosin rúnnstykki og brauð sem bakaríin hafi áður flutt inn, nú sé orðið mun ódýrara að baka þau heima. Að mati Guðmundar felst minnkandi innflutningur ekki í því að Íslendingar séu hættir að sjá ákveðnar matvörur.

„Fólk hefur aðgang að sömu vörum og í fyrra, en þetta ástand gerir það að verkum að íslensk vara er miklu samkeppnishæfari í verði.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert