30% fækkun farþega á Keflavíkurflugvelli

Úr Leifsstöð á Keflavíkurflugvelli.
Úr Leifsstöð á Keflavíkurflugvelli. mbl.is/Helgi Bjarnason

Samtals komu 163 þúsund farþegar til landsins um Keflavíkurflugvöll  fyrstu fjóra mánuði ársins borið saman við 233 þúsund farþega á sama tímabili á síðasta ári. Er  þetta  30% samdráttur.

Fram kemur í Hagvísum Hagstofunnar í dag, að síðastliðna 12 mánuði, til loka apríl, komu 817 þúsund farþegar til landsins og er það 14,6% samdráttur frá 12 mánuðum þar á undan. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert