Illugi Gunnarsson var í dag kjörinn formaður þingflokks sjálfstæðismanna á fundi flokksins í dag. Ragnheiður Elín Árnadóttir var kjörin varaformaður þingflokksins og Einar K. Guðfinnsson ritari þingflokksins.
Illugi gegndi stöðu varaformanns þingflokksins á síðasta kjörtímabili en hann var fyrst kjörinn á Alþingi í maí 2007.