Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú nauðgun sem átti sér stað við Tryggvagötu í Reykjavík á sunnudagsmorgun. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar, segir að ráðist hafi verið á 19 ára gamla stúlku og henni nauðgað. Tveir karlmenn hafa verið handteknir og úrskurðaðir í gæsluvarðhald fram til föstudags.
Mennirnir, sem eru af erlendu bergi brotnir, voru handteknir skömmu eftir að árásin átti sér stað, en stúlkan kærði nauðgunina. Þeir hafa verið yfirheyrðir en játningar liggja ekki fyrir.
Málið er í rannsókn.