Miðstjórn Alþýðusambands Íslands lýsir yfir megnri óánægju með seinagang við að endurskipuleggja fjárhag heimilanna, þrátt fyrir að Alþingi hafi samþykkt mikilvægar breytingar á réttar- og samningsstöðu almennings gagnvart kröfuhöfum.
Á ályktun miðstjórnar er þess krafist að stjórnvöld tryggi þegar að heimili í vanda geti nýtt sér þau úrræði sem eiga að standa þeim til boða.
Til þess að svo verði þarf m.a að:
Alþýðusambandið segist ekkert erindi eiga í nánara samstarf við stjórnvöld um framvindu efnahagsmála fyrr en búið er að koma þessum málum í rétt horf.
Þá er áréttuð tillaga ASÍ um að stofnaður verði Bjargráðasjóður heimilanna þar sem lán sem eru á afskriftareikningum fjármálastofnana verði færð á eina hendi til að tryggja jafnræði og skilvirkni við að endurskipuleggja fjárhag heimilanna.