Lögreglan á Eskifirði stöðvaði í gær kannabisræktun á sveitabæ í Berufirði. Fram kom í fréttum Ríkisútvarpsins, að ræktunin hafi verið á byrjunarstigi en miðað við tól og tæki hefði hún getað orðið stórfelld. Framleiðslunni var fjarstýrt með fullkomnum tölvubúnaði.
Lögreglan í umdæmi sýslumannsins á Eskifirði rannsakar málið í samstarfi við fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Enginn maður var á staðnum þegar lögreglan kom á vettvang í gær. Haft var eftir lögreglu, að búið væri að yfirheyra nokkra einstaklinga en að enginn hafi verið formlega handtekinn.
Búskapur var stundaður á bænum lengi en jörðin var seld fyrir fjórum árum. Að sögn Ríkisútvarpsins er talið, að þeir sem stóðu að ræktuninni séu allir af höfuðborgarsvæðinu.