Bretar eiga nú í samningaviðræðum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, IMF, um greiðslu skulda vegna hruns íslensku bankanna. Kom þetta fram í fyrirspurnatíma Gordons Browns forsætisráðherra í neðri deild þingsins á miðvikudag.
Hann var spurður um stöðu Christie-spítalans í Manchester sem tapaði sex milljónum punda við fall Kaupþings. Sagði Brown að hún myndi verða ljós þegar menn vissu fyrir víst hve mikið myndi endurheimtast af skuldum íslensku bankanna. Sagði hann íslensk stjórnvöld hafa haft eftirlit með umræddum bönkum á hendi en þess má geta að bankinn Kaupthing Singer&Friedlander var breskur banki og heyrði því ekki undir Fjármálaeftirlitið hér.
„Það er fyrst og fremst skylda íslenskra stjórnvalda að borga og þess vegna erum við í samningaviðræðum við IMF og fleiri stofnanir um það hve hratt Íslendingar geti endurgreitt tapið,“ sagði ráðherrann.
„Mér finnst það mjög athyglisvert að Bretar séu í viðræðum við IMF um þessi mál,“ sagði Svavar Gestsson, sendiherra og formaður samninganefndar Íslendinga gagnvart Bretum og Hollendingum. „Sjóðurinn hefur yfirleitt ekki nein bein afskipti af tvíhliða deilum milli aðildarríkja sjóðsins.“