Eiríkur Bergmann Einarsson, stjórnmálafræðingur, segir að Viðreisnarstjórnin svonefnda hafi lagt fram þingsályktunartillögu um aðildarviðræður við EFTA árið 1968 með svipuðum hætti og ný ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs ætli að gera nú um aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Eiríkur segir á bloggsíðu sinni, að ríkisstjórn Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks hafi lagt fram þingsályktunartillögu árið 1968 til að komast að raun um hvaða kjör byðust. Í athugasemdum við tillöguna hafi komið fram að ríkisstjórnin teldi tímabært „að fá úr því skorið með hvaða kjörum Ísland gæti gengið í EFTA“.
„Kannast menn við orðalagið?" spyr Eiríkur og bætir við, að sumir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafi haft efasemdir um málið á sínum tíma.