Íbúðalánasjóður lækkar útlánsvexti sína í dag. Er það gert í kjölfar útboðs íbúðabréfa í gær. Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 4,70% en þeir voru 4,90%. Vextir á íbúðalánum án uppgreiðsluákvæðis verða 5,20% en þeir voru 5,40%.
Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 11. maí s.l. ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 4,24%. Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,25%, vegna útlánaáhættu 0,20% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,50%.