Stjórn Samtaka fiskvinnslustöðva leggst eindregið gegn öllum tillögum og hugmyndum um fyrningarleið í sjávarútvegi eins og hún hefur verið kynnt í samstarfsyfirlýsingu þeirra flokka sem nú skipa ríkisstjórn Íslands. Þetta kemur fram á vef LÍÚ.
Afstaða SF kemur fram í ályktun sem samtökin sendu frá sér í dag. Og er hún eftirfarandi:
„Stjórn Samtaka fiskvinnslustöðva leggst eindregið gegn öllum tillögum og hugmyndum í Samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri Grænna um svokallaða fyrningarleið í sjávarútvegi og innköllun á öllum fiskveiðiheimildum á næstu tveimur áratugum.
Samtök fiskvinnslustöðva trúa því ekki fyrr en á reynir að stjórnvöld fari þessa leið, en framkvæmd fyrningarleiðar felur í sér að afkomu sjávarútvegsfyrirtækja og atvinnuöryggi starfsfólksins verður kippt í burtu á fáeinum árum. Komist fyrningarleiðin til framkvæmda mun hún leiða til fjöldagjaldþrota í sjávarútvegi með ófyrirséðum afleiðingum fyrir starfsfólk fyrirtækjanna og þau sveitarfélög þar sem útgerð og fiskvinnsla er burðarás atvinnulífsins.
Sjávarútvegur gegnir nú á nýjan leik lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi. Fyrirtæki í sjávarútvegi hafa tekið miklum breytingum á undanförnum árum að verksvið margra þeirra nær í senn til fiskveiða, fiskvinnslu og markaðs-setningu sjávarafurða.
Stjórn Samtaka fiskvinnslustöðva skorar á ríkisstjórnina að afturkalla áformaða fyrningarleið í sjávarútvegi, en setjast þess í stað niður með fulltrúum hagsmunaaðila í sjávarútvegi til þess að ræða þau viðfangsefni sem brenna mest á atvinnugreininni.“