50 prósenta hækkun á fötum og skóm

mbl.is/Kristinn

Verð á fatnaði og skóm hefur hækkað um rúmlega 50 prósent frá því í janúar í fyrra. Brauð og kornvörur hafa hækkað um rúm 37 prósent á tímabilinu og mjólk, ostar og egg um tæp 32 prósent. Á sama tíma hefur kaupmáttur, það er munur á vísitölu neysluverðs og vísitölu launa, rýrnað um 9 til 10 prósent, að sögn Hennýjar Hinz, hagfræðings hjá Alþýðusambandi Íslands.

„Þetta er þróun á einstökum liðum en hún segir manni auðvitað ekkert um einstök heimili. Það borga allir sama verð en afborganir af lánum hjá fólki og tekjur eru misjafnar. Ef við myndum skoða kaupmátt einhvers sem hefur misst vinnuna hefur kaupmáttur þess heimilis minnkað um tugi prósenta,“ bendir Henný á.

Hún segir gengisbreytingar skýra margt. „Enginn efast um það. Áttatíu prósenta gengisfall frá því í upphafi árs 2008 segir sína sögu. Það má hins vegar ekki gleyma því að gengið skýrir ekki allt verðlag á vörum hér á landi. Verðlagið er samsett bæði úr innlendum og erlendum kostnaðarliðum. En laun hafa ekki hækkað á tímabilinu. Innlendur kostnaður, húsaleiga og annað vísar frekar niður á við núna þótt það hafi ekki gert það á öllu tímabilinu.“

Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert