Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt tvítugan karlmann til að greiða dyraverði 177 þúsund krónur í skaðabætur en maðurinn beit dyravörðinn í brjóstið þegar vísa átti honum út úr Sjallanum í júlí í fyrra.
Maðurinn neitaði sök en dómurinn sakfelldi hann fyrir líkamsárás. Refsingu mannsins var hins vegar frestað en fram kemur í dómnum að líkamsárásin hafi átt sér stað í ryskingum mannanna tveggja og vitni greinir mjög á um tildrög þeirra.