Guðfríður Lilja Grétarsdóttur var í dag kjörin formaður þingflokks Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs í stað Jóns Bjarnasonar, sem nú hefur tekið við embætti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Álfheiður Ingadóttir var endurkjörin varaformaður og Björn Valur Gíslason var kjörinn ritari í stað Atla Gíslasonar.