Mikil svifryks- og ósonmengun í dag

Útlit er fyrir svifryksmengun í Reykjavík í dag.
Útlit er fyrir svifryksmengun í Reykjavík í dag. mbl.is/Brynjar Gauti

Líkur eru taldar á að styrkur svifryks verði yfir mörkum í Reykjavík í dag, 13. maí. Svifryksmengunin virðist helst berast til borgarinnar frá meginlandi Evrópu og með sandstormum í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Styrkur ósons  er einnig hár.

Að sögn umhverfis-og samgöngusvið Reykjavíkur mældist gildi svifryks 165 míkrógrömm á rúmmetra á Grensásvegi og 138 í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum klukkan 11 í dag. Viðmiðunarmörk eru  50 míkrógrömm á rúmmetra.

Þeir sem eru með viðkvæm öndunarfæri er ráðlagt að taka tillit til þessa. Hægt er fylgjast með styrk svifryks á heimasíðu Reykjavíkurborgar og á veðurvef mbl.is.

Styrkur ósons (O3) er einnig hár í dag en það berst frá meginlandi Evrópu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert