Þegar menn komu til vinnu í framhaldaskólanum að Laugum í Reykjadal í morgun kom í ljós að skógarþröstur hafði hafið byggingaframkvæmdir á skjávarpa í einni skólastofunni. Þrátt fyrir hreiðurgerðina létu nemendur þetta ekki trufla sig í prófi í skólanum í morgun.