Kostnaðarsamasti lyfjaflokkurinn hjá Sjúkratryggingum á árinu 2008 var blóðþrýstingslyf en útgjöld SÍ vegna þeirra námu 991 milljón króna. Komið hefur í ljós að flestir þeir sem nota blóðþrýstingslyf á Íslandi nota svonefnda angíótensín II blokkara þó að hægt sé að fá jafngilt ódýrara lyf.
Þetta kemur fram í fréttabréfi sem lyfjadeild Sjúkratrygginga Íslands gefur út í dag.ACE-hemlar, angíótensín II blokkar og renín hemlar eru jafngild lyf til meðferðar við of háum blóðþrýstingi. Að sögn Sjúkratrygginga er ekki munur á lyfjum innan hvors flokks eða milli flokka í virkni við að meðhöndla blóðþrýsting, hjartabilun eða langvinnan nýrnasjúkdóm.
Um 30 þúsund Íslendingar nota ACE-hemla eða angíótensín II blokka og þar af eru um 70% sem nota angíótensín II blokka. ACE hemlar eru ráðlagðir sem fyrsta val framyfir angíótensín II blokka því ACE-hemlar eru mun ódýrari. Segir stofnunin, að það sé mjög órökrétt að velja mun dýrara lyf í byrjun því hjá um 95 af hverjum 100, sem byrja á ACE-hemli, komi aldrei upp sú staða að skipta þurfi í angíótensín II blokka vegna aukaverkana.