Skrifað verður í dag undir samstarfssamning Samtaka atvinnulífsins, Félag kvenna í atvinnurekstri og Viðskiptaráðs Íslands um leiðir að því marki að fjölga konum í forustusveit íslensks viðskiptalífs þannig að hlutfalls hvors kyns þar verði ekki undir 40% árið 2013.
CreditInfo mun árlega mæla árangur verkefnisins. Í niðurstöðum nýrrar rannsóknar fyrirtækisins á hlutdeild kvenna í íslensku atvinnulífi, sem kynnt verður nánar síðdegis, kemur meðal annars fram að fyrirtæki eru síður líkleg til að lenda í vanskilum ef þau eru rekin af konum. Þá er arðsemi eigin fjár meiri í fyrirtækjum þar sem konur eru framkvæmdastjórar og fyrirtæki sem stofnuð eru af báðum kynjum eru líklegust til að lifa. Einnig hafa blandaðar stjórnir karla og kvenna reynst best.