Veðurstofan spáir áfram blíðuveðri á landinu í dag, 10-18 stiga hita og að hlýjast verði í uppsveitum suðvestanlands. Þó er gert ráð fyrir þokulofti eða súld við norður- og austurströndina og þar verði svalara.
Gert er ráð fyrir norðaustlægri átt, 5-10 metrum á sekúndu og víða léttskýjað, en hvassara austanlands.