Mannfjöldi er nú á Austurvelli þar sem móttökuathöfn fyrir íslenska Evróvisjónhópinn hefst klukkan 17:30. Gert er ráð fyrir að Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og félagar hennar stigi á svið um klukkan 18 en fram að því mun Páll Óskar halda uppi fjörinu.
Það eru Reykjavíkurborg og Ríkisútvarpið, sem standa fyrir samkomunni í tilefni af velgengni íslenska hópsins í Evrópusöngvakeppninni. Sjónvarpað verður beint frá athöfninni