Hlýtt er á vesturhluta landsins í dag eins og í gær. Nú klukkan 14 mældist hitinn á Þingvöllum 18,9 stig og á sjálfvirki veðurmælingarstöð í Reykjavík mældist 17,7°C.
Íbúar á Norðausturlandi eru hins vegar ekki eins heppnir með veður en þar hefur hitinn verið um eða yfir frostmark í dag.