Breytti lyfseðli

Kona kom í apótek Lyfju á Selfossi í síðustu viku til að kaupa lyfskylt lyf út á lyfseðil sem hún hafði undir höndum.  Sá sem afgreiddi konuna tók eftir að búið var að breyta lyfseðlinum í þeim tilgangi að ná út meira magni af lyfjunum en læknir hafði skrifað á seðilinn. 

Lögregla var kölluð til sem handtók konuna og færðu til yfirheyrslu þar sem hún viðurkenndi að hafa breytt seðlinum eftir að hann var gefinn út.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert