Um 150 reiðhjól verða boðin upp hjá óskilamunadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu nk. laugardag klukkan 13. Uppboðið verður haldið utandyra við Askalind 2a í Kópavogi. Að þessu sinni verða eingöngu boðin upp reiðhjól enda safnast þau upp hjá lögreglunni sem aldrei fyrr. Þetta eru reiðhjól sem hafa fundist í óskilum víða í umdæminu og enginn hefur hirt um að sækja, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.