Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu, sem Fasteignaskrá Íslands reiknar út, lækkaði um 2,6% frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 6,9%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún lækkað um 9,9% og lækkun síðastliðna 12 mánuði var 9,4%.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Er vísitölunni ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma.