Ekki er ráð nema í tíma sé tekið og þeir sem ætla á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum eftir tæplega tvo og hálfan mánuð vilja greinilega hafa vaðið fyrir neðan sig. Uppselt er þegar í fjórar ferðir Herjólfs til Eyja á fimmtudag og föstudag fyrir þjóðhátíð.
Fram kemur á vefnum eyjum.neti, að fáir miðar séu eftir í síðari ferð skipsins á miðvikudeginum. Þá sé einig tölvert búið að bóka í næturferðirnar. Ákveðið hefur verið, í ljósi mikillar eftirspurnar að bæta við næturferð aðfaranótt laugardags.