„Ég þarf að jafna mig eftir þetta klaufaspark,“ segir Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambandsins um tillögur Samtaka atvinnulífsins um þróun launasamninganna.
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagði í hádegisfréttum RÚV að samtökin leggi til að að lægstu laun hækki um tæpar sjö þúsund krónur 1. júlí en aðrar launahækkanir bíði fram á haustið. Þeir sem hafi þrjú hundruð þúsund krónur í grunnlaun eða meira á mánuði, eigi hins vegar ekki að fá launahækkanir á árinu.
Kristján segir að eigi þetta að vera niðurstaðan séu kjarasamningar í sundur. „Klaufaspark.“ Hugmyndinrar nálgist ekki hugmyndir baklands stéttarfélaga innan Starfsgreinasambandsins. Kristján hefur fundið með baklandinu síðustu daga. „Eins og þessar hugmyndir líta út eru þær rof á samningi. Þá er samningurinn í sundur og menn fara á upphafsreit.“ Þá stefni í nýjar kröfugerðir og að launamenn semji upp á nýtt við atvinnurekendur.