Sædís ÍS-67 kom í gærkvöldi inn á Norðurfjörð úr eggjaleiðangri í Hornbjargi. Sædísin er nú að hætta á grásleppuveiðum og byrjar fljótlega siglingar frá Norðurfirði á Hornstrandir með ferðafólk en mikil eftirspurn er eftir slíkum ferðum í sumar.
Í ferðinni voru Reimar Vilmundarson, Sigurður Stefánsson, Kristmundur Kristmundsson og Páll Pálsson. Þeir tíndu eggin í svonefndum Forvaða í Hornbjargi. Alls náðu þeir 800 eggjum, allt svartfuglseggjum.
Árneshreppsbúar gátu í gærkvöldi fengið svartfuglsegg hjá þeim félögum.