Níu ára drengur er á gjörgæsludeild á Landspítalanum eftir umferðarslys á uppstigningadag, 21. maí. Hann er alvarlega slasaður og í öndunarvél, að sögn vakthafandi læknis.
Slysið varð rétt fyrir kl. 14.00 í Steinási í Garðabæ, en það er botnlangagata. Drengurinn varð fyrir bíl í götunni og voru meiðsl hans talin minniháttar í fyrstu.