Tekinn á 172 km hraða

mbl.is/Július

Ökumaður um tvítugt var stöðvaður í morgun á Reykjanesbraut á 172 km hraða. Hann var sviptur ökuréttindum á staðnum og verður væntanlega ákærður, að sögn lögreglunnar. Einn farþegi var í bílnum. Ökumaðurinn var alsgáður.

Annar ökumaður var stöðvaður á 130 km hraða, einnig á Reykjanesbrautinni, og má sá eiga von á sekt fyrir hraðaksturinn. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert