Stjórn Borgarahreyfingarinnar var sökuð um klíkustarfsemi á félagsfundi í Borgarahreyfinginni í gær. Fram kom í fréttum Ríkisútvarpsins að deilur urðu um launamál kosningastjóra og framkvæmdastjóra flokksins.
Að sögn Ríkisútvarpsins hélt Guðmundur Andri Skúlason ræðu á fundinum þar sem hann sakaði stjórn flokksins um að taka ákvarðanir á bak við luktar dyr og sagði að gagnsæið, sem hefði verði aðalmerki flokksins, væri ekki lengur til staðar.
RÚV sagði, að þingmenn hreyfingarinnar hefðu í morgun ekki verið tilbúnir til að veita
viðtöl en von sé á yfirlýsingu frá þeim seinna í dag.