Talsverðar tafir hafa verið á umferð í Ártúnsbrekku í Reykjavík nú síðdegis eftir að bíll valt þar. Að sögn lögreglu hafa þrír bílar verið dregnir á brott með kranabílum. Einn maður var fluttur á slysadeild til skoðunar en var ekki talinn alvarlega meiddur.
Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er talið, að bíll hafi rekist utan í annan bíl sem varð til þess að hann valt.
Nóg hefur verið að snúast hjá slökkviliðinu í dag. Það var kallað út vegna elds í ruslagámi, sem reyndist lítill, og vegna reykjarlyktar í stigagangi í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði. Ekki er vitað hvaðan lyktin barst.
Þá var slökkviliðið kallað út nú undir kvöld vegna elds í gasgrilli á svölum húss í Suðurhólum. Slökkviliðsmenn slökktu eldinn með handslökkvitæki og skrúfuðu fyrir gasið.