85 fyrirtæki í þrot í apríl

Í apríl 2009 voru 85 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 52 fyrirtæki í apríl 2008, sem jafngildir rúmlega 63% aukningu á milli ára. Eftir  atvinnugreinum voru flest gjaldþrot eða 27 í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og 18 í heild- og smásöluverslun.

Fyrstu fjóra mánuði ársins 2009 er fjöldi gjaldþrota 346 en fyrstu fjóra mánuði ársins 2008 voru 227 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta sem jafngildir rúmlega 52% aukningu milli ára, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert