Tveir handteknir í fíkniefnamáli

Enn finnst kannabis
Enn finnst kannabis Kristinn Ingvarsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í Kópavogi í gærkvöld. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust rúmlega 4 kg af marijúana og tæplega 3 kg af hassi. Einnig var lagt hald á peninga sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Tveir karlar á þrítugsaldri voru handteknir í þágu rannsóknarinnar, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert