Annríki hefur verið í vínbúð Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins í Skútuvogi í dag og jafnvel nokkurt öngþveiti.
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, mælti nú á sjöunda tímanum fyrir frumvarpi um hækkun opinberra gjalda á áfengi, tóbaki og eldsneyti.
Að sögn starfsstúlku í vínbúðinni í Skútuvogi hefur verið talsvert mikið að gera og jafnvel nokkurt öngþveiti. Opið er til klukkan 20 í vínbúðunum á Dalvegi, í Skútuvogi og Skeifunni.