Rafmagn komst aftur á í Grindavík um ellefuleytið í morgun eftir rafmagnsleysi sem varð vegna bilunar sem hugsanlega má rekja til jarðhræringanna undanfarið. Bilun fannst í jarðstreng sem liggur frá Svartsengi til Grindavíkur.
Rafmagnslaust varð í Grindavík klukkan 7 í morgun.