Annar jarðskjálfti varð á Reykjanesi laust eftir klukkan fimm í dag. Hann mældist 3,9 á Richterskalanum og átti upptök undir Fagradalsfjalli eins og skjálftinn sem varð um klukkan hálf tvö í dag. Sá var þó ívið kröftugri, 4,3 á Richter. Skjálftinn fannst greinilega á höfuðborgarsvæðinu.