Rólegt var í miðborg Reykjavíkur í nótt, að sögn varðstjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Flestum skemmtistöðum var lokað klukkan þrjú og lögreglan þurfti ekki að hafa mikil afskipti af ölvuðu fólki í miðborginni. Engin alvarleg mál komu upp.