Eldur kom upp í bíl í Rockville á Reykjanesi í gærkvöldi þar sem nokkur ungmenni léku sér við að spóla á planinu. Eitt dekkið á bílnum sprakk og eigandi bílsins fór að huga að dekkinu. Heyrðist þá smellur í vélinni og um leið kom eldur, að því er kemur fram á vefnum 245.is.
Hringt var strax í neyðarlínuna sem kom boðum til slökkviliðsins í Sandgerði. Kom það á vettvang á innan við 8 mínútum frá útkalli. Bíllinn var þá orðinn alelda, en greiðlega gekk að slökkva eldinn. Engan sakaði