Umferðaróhapp átti sér stað fyrr í dag í umdæmi lögreglunnar á Borgarnesi. Voru sjúkrabílar sendir á staðinn en meiðsl á fólki reyndust vera minniháttar.
Óhappið átti sér stað undir Akrafjalli. Var tvennt flutt á slysadeild en meiðsl þeirra reyndust vera óveruleg.