Dalai Lama er nú staddur í Háskóla Íslands á sérstakri samkomu ætlaðri nemendum skólans og kennurum. Mikið fjölmenni er á fundinum.
Dalai Lama heimsækir skólann í boði rektors og Hugvísindasviðs HÍ. Samkoman hófst klukkan 10:30 og mun standa til klukkan tólf.
Rektor Háskóla Íslands, Kristín Ingólfsdóttir, opnaði samkomuna og hélt Dalai Lama framsögu að því loknu.
Dalai Lama sagði í ræðu sinni að hann teldi að menntun væri mannkyninu afar mikilvæg en nauðsynlegt væri að vekja meiri athygli á siðferðilegum gildum. Til dæmi hefði nútímatækni og mikil þekking leitt til haturs- og ofbeldisverka, og í því efni minntist Dalai Lama á árásirnar 11. september 2001 í Bandaríkjunum.
Þegar Dalai Lama hefur lokið máli sínu mun hann eiga samræðu við þrjá kennara skólans, þau Pétur Pétursson, prófessor í guðfræði, Pál Skúlason, prófessor í heimspeki og fyrrverandi háskólarektor og Sigríði Þorgeirsdóttir, dósent í heimspeki. Ástráður Eysteinsson, prófessor í almennri bókmenntafræði og forseti Hugvísindasviðs stýrir samkomunni.