Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, krafðist þess þegar þingfundur hófst á ný, að rætt yrði um Icesave-samninga í stað EES-frumvarpa eins og til stendur.
Bæði Sigmundur Davíð og Birkir Jón Jónsson, varaformaður flokksins, kröfðust þess að leynd yrði aflétt af málinu og þær upplýsingar, sem veittar voru á fundi utanríkismálanefndar þingsins í morgun.