Steingrímur fær fullt umboð

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, fékk fullt umboð ríkisstjórnarinnar til að halda viðræðum áfram um lausn Icesave deilunnar á þeim nótum sem kynntar voru í ríkisstjórn og þingflokkum í morgun, á sérstökum aukafundi í ríkistjórn klukkan tólf. 

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að þau drög að samkomulagi sem hafi verið kynnt séu mun hagstæðari hvað varðar lánstíma og vaxtakjör en áður hafi verið í boði.  Tryggingasjóður innlána gengur frá málinu með ríkisábyrgð, en vegna ábyrgðanna þarf málið að fara fyrir þingið.

Jóhanna segir að málið sé ekki í höfn fyrr en samninganefndir Íslands, Bretlands og Hollands hafi allar samþykkt þetta. Vonir standi þó til að þetta verði  undirritað fljótlega  með fyrirvara um samþykki alþingis. Þetta sé mikilvægur þáttur í endurreisnarferlinu, ásamt Norðurlandasamningunum en þá sé þjóðin komin langt með að ná sátt við Alþjóðasamfélagið.

Jóhanna segir að það sé aftur komið jákvætt hljóð í aðila vinnumarkaðarins varðandi gerð stöðugleikasáttmála og fljótlega sjái fyrir endann á niðurstöðu í ríkisfjármálunum og endurreisn bankanna. Ef það náist að sækja um aðild að Evrópusambandinu fyrir lok sumarþings sé búið að stíga afar stórt skref í því að ná utan um endurreisnarferlið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert