Atvinnuleysi mældist 8,7% í maí

Skráð atvinnuleysi í maí var 8,7% eða að meðaltali 14.595 manns og minnkaði atvinnuleysi um 1,5% að meðaltali frá apríl eða um 219 manns. Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1%, eða 1.739 manns.

Vinnumálastofnun segir, að vegna árstíðasveiflu aukist áætlað vinnuafl í 167.789 manns í maí eða um rúmlega 5000 sem hafi áhrif á reiknað atvinnuleysishlutfall til lækkunar.

Atvinnuleysi er nú mest á Suðurnesjum, 14,2% en minnst á Vestfjörðum 2,3%. Atvinnuleysi breytist lítið á höfuðborgarsvæðinu en minnkar um 4,6% á landsbyggðinni.

Alls staðar dregur úr atvinnuleysi á landsbyggðinni. Hlutfallslega dregur mest úr atvinnuleysi á Austurlandi eða um 67 manns og fer atvinnuleysi þar úr 5,2% í 4,1%.

Atvinnuleysi eykst um 2,9% meðal kvenna en minnkar um 3,8% meðal karla. Atvinnuleysið er 9,7% meðal karla og 7,4% meðal kvenna.

Vinnumálstofnun segir, að langtímaatvinnuleysi sé nú tekið að aukast og þeir sem hafa verið á skrá lengur en 6 mánuði voru 4836 í lok maí en 3269 í lok apríl og eru nú um 30% allra á atvinnuleysisskrá.  Þeir sem verið hafa atvinnulausir í meira en ár voru 435 í lok maí en 36  í lok apríl.
Atvinnulausum 16-24 ára hefur fjölgað úr 3588 í lok apríl í 3734 í lok maí og eru þeir um 23% allra atvinnulausra í maí en voru um 21% í lok apríl.

Horfur á vinnumarkaði í júní

Yfirleitt batnar atvinnuástandið frá maí til júní, m.a. vegna árstíðasveiflu en Vinnumálastofnun segir, að gera megi ráð fyrir að einhver fjöldi nemenda komi á atvinnuleysisskrá í júní.

Erfitt sé að áætla atvinnuleysi um þessar mundir vegna mikillar óvissu í efnahagslífinu, en líklegt sé að atvinnuleysið í júní 2009 muni minnka og verða á bilinu 7,9%-8,4%. Talsverð aukning sé á framboði vinnuafls milli maí og júní, sem nemur um 6.700 manns og hafi áhrif á reiknað atvinnuleysi. Í fyrra var atvinnuleysið 1,1%.

Vefur Vinnumálastofnunar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert