Mikill verðmunur reyndist á milli verslana þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á 54 vörutegnundum í 8 verslunum á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri þann 9. júní.
Bónus var oftast með lægsta verðið á þeim vörum sem kannaðar voru eða í 27 skipti af 54. Krónan var 14 sinnum með lægsta verðið. Kaskó og Fjarðarkaup 8 sinnum og Nettó 6 sinnum. Samkaup–Úrval var 22 sinnum með hæsta vöruverðið, Nóatún 16 sinnum og Hagkaup 9 sinnum.
Verð var skoðað í fjórum lágvöruverðsverslunum og fjórum þjónustuverslunum og segir ASÍ, að það hafi vakið athygli að Fjarðarkaup sé í flestum tilfellum ódýrari en aðrar þjónustuverslanir. Meiri verðmunur var á milli hæsta og lægsta verðs í þjónustuverslununum en í lágvöruverðsverslununum og sé helsta skýringin sú að Fjarðarkaup sker sig úr í verðlagningu.
Mestur verðmunur í könnuninni var á einum lítra af ódýrasta fáanlegum appelsínusafa 100% hreinum sem var dýrastur, 219 kr í Bónus en ódýrastur, 99 kr í Krónunni sem er 121% verðmunur. Minnsti verðmunur var af mjólkurvörum og forverðmerktum vörum eins og ostum og áleggi. Af einstökum liðum var minnstur verðmunur milli verslana á skólaosti 5,3% og léttmjólk 7,4%.
Lítill verðmunur var á mjólkurvörum, viðbiti og ostum. Gríðarlegur verðmunur var á kjötvörum og fiski t.d. var 44% verðmunur á krydduðum lambalærissneiðum, en þær kostuðu 1596 krónur kílóið í Bónus en 2298 krónur í Krónunni, verðmunurinn er 52%. Eins var mikill verðmunur á bönunum sem kostaðuðu 277 kr/kg í Nettó en 169 kr/kg í Kaskó, verðmunurinn er 76%. Bleiur fyrir 10 kg. barn voru ódýrastar í Krónunni, kostuðu 23 kr. stykkið en dýrastar í Nettó á 41 kr. stykkið, verðmunurinn er 78%.
Mikill verðmunur var á milli verslana á brauðmeti og kexi, kjötvörum, dósamat og þurrvöru, ávöxtum og grænmeti. ASÍ segir, að neytendur þurfi að hafa vakandi auga á matvöruverði sem er síbreytilegt. Oft sé erfitt að átta sig á verðmismun vegna þess að sömu vörur séu seldar í mismunandi stærðum og stærri pakkningar ekki endilega ódýrari.
Einnig sé oft erfitt fyrir neytendur að átta sig á raunverulegu mælieiningaverði, þar sem mikið sé af formerktum vörum með álímdum afsláttarmiða, sem tilgreini ekki endanlegt vöruverð. Því sé hugsanlega ekki hagkvæmara að kaupa vöru með afslætti því varan gæti verið ódýrari í öðrum pakkningum með engum afslætti.