Ríkissaksóknari sendi umboðsmanni Alþingis í dag útskýringar á því að kæra, sem embætti hans var send vegna niðurfellingar ábyrgða lykilstjórnenda Kaupþings, var þrjá mánuði á leiðinni frá ríkissaksóknara til sérstaks saksóknara.
Fram kom í Kastljósi Sjónvarpsins í gær, að fyrrverandi hluthafi í gamla Kaupþingi hefði kært ákvarðanir stjórnar Kaupþings um að fella niður ábyrgðirnar. Kæran var send lögreglu í nóvember en kæran var þrjá mánuði á leiðinni frá ríkissaksóknara til embættis sérstaks saksóknara.
Fram kom í fréttum Ríkisútvarpsins í kvöld að ríkissaksóknara hefði í dag sent umboðsmanni Alþingis útskýringar á töfunum. Samkvæmt bókunum embættisins var málið og gögn því tengd sent sérstökum saksóknara þegar í janúar eftir að það embætti var stofnað. Svo virðist sem um einhver mistök hafi verið að ræða og gögn hafi ekki skilað sér frá embætti ríkissaksóknara.