Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra var spurð eftir ríkisstjórnarfund í morgun hvort stjórnin myndi ekki springa ef Alþingi neitaði að samþykkja ríkisábyrgðir vegna Icesave - samningsins. Hún svaraði því til að ef samningurinn verði felldur sé komin upp alveg ný staða sem þurfi að taka á. Hún segist þó ekki trúa því að svo fari. Það verði að skoða málið í ljósi forsögunnar. Hún hafi ekki trú á því að Sjálfstæðismenn standi að því að greiða atkvæði gegn þessum samningi.
Icesave- samkomulagið verður væntanlega lagt fyrir Alþingi í lok næstu viku. Ágreiningur er um málið í þingflokki VG en fjármálaráðherra segir ekki hægt að tala um efnislegan ágreining fyrr en menn hafi kynnt sér öll gögn málsins. Hann segist treysta því að það hafi áhrif á viðhorfið til samningsins þegar öll gögn verði lögð fyrir þingið og segist jafnframt bjartsýnn á að þá sjái menn að þetta sé góð niðurstaða miðað við aðstæður. Þá geti menn líka gefið sér tíma til að hugleiða hvaða afleiðingar það hafi ef þetta verði ekki samþykkt.